Útskriftarverkefni í Listaháskóla Íslands 2008
Verkefnið felst í að koma náttúrulegum hreyfingum inní stafræna heiminn og brúa bilið milli hins efnislega og stafræna með gagnvirkri grafískri upplifun. Birtingarmynd verksins er aldrei eins því hver og einn sýningargestur skapar verkið með sinni upplifun og hreyfingu.
Vefmyndavél myndar áhorfandann þar sem hann stendur fyrir framan verkið.
Myndgreiningarhugbúnaður, sem almennt er notaður til þess að gera vélmennum kleyft að "sjá" umhverfi sitt, greinir hreyfingu með því að bera sífellt saman nýjasta rammann við eldri. Við það fæst skuggamynd af áhorfandanum sem síðan er notuð til að hafa áhrif á myndverkið. Í hvoru myndverki fyrir sig eru hundruðir lína sem hver um sig hefur einfalda gervigreind sem gerir henni kleyft að forðast, eða sækja í skuggamyndina.
Þakka eftirtöldum aðilum: Trikk fyrir aðstoð við tæknilega útfærslu Start fyrir tölvubúnað Exton fyrir myndvarpa Gagarín fyrir ómældan stuðning